|
1991
| 1992
| 1993
| 1994
| 1995
| 1996
| 1997
| 1998 |
||||||||||||||||||
| |
1.
Skrifstofa umboðsmanns Alþingis að Rauðarárstíg 27, III. hæð,
var á árinu opin almenningi kl. 9.00-15.00 frá mánudegi til
föstudags. Auk mín voru starfsmenn þrír, Katrín Jónasdóttir,
skrifstofustjóri, Þórhallur Vilhjálmsson, lögfræðingur, og Páll
Hreinsson, lögfræðingur, sem frá 22. ágúst 1991 gegndi hálfu
starfi í stöðu aðstoðarmanns umboðsmanns Alþingis, en hefur gegnt
fullu starfi frá 1. apríl 1992. Þau voru öll ráðin tímabundið,
þar sem heimildir til fastráðningar eru ekki fyrir hendi. Auk þess
hef ég notið aðstoðar nokkurra manna vegna einstakra viðfangsefna. 2. Á
árinu 1992 voru skráð 194 ný mál. Á árinu tók ég fjögur mál
upp að eigin frumkvæði. Skráð mál á grundvelli kvartana, sem
bornar voru fram, voru 190. Tekið skal fram, að mál er því aðeins
skráð að skriflegt erindi hafi borist, oftast í formi skriflegrar
kvörtunar, eða að umboðsmaður taki mál upp að eigin frumkvæði.
En einnig er algengt að menn hringi eða komi á skrifstofu
umboðsmanns og beri upp mál sín og leiti upplýsinga. Er þá oftast
greitt úr málum með skýringum eða með því að koma þeim í
réttan farveg innan stjórnsýslunnar, án þess að til skráningar
komi. Þessi þáttur í starfi umboðsmanns er tímafrekur eins og
áður. 3.
Árið 1992 bárust mér fleiri kvartanir út af gjaldtöku og
skattheimtu en árin á undan. Af því tilefni tel ég ástæðu til
að árétta grundvallarreglur um skatta og gjöld. 4. Umboðsmaður Alþingis kveður ekki upp úrskurði heldur lætur uppi álit. Það varðar því miklu fyrir starf umboðsmanns Alþingis, hver séu viðbrögð stjórnvalda við álitum umboðsmanns Alþingis. Á bls. 228 í þessari skýrslu er að finna bréfaskipti mín við fjármálaráðuneytið í tilefni af ummælum skrifstofustjóra ráðuneytisins í dagblaði. Þar voru höfð eftir honum þau ummæli, að ráðuneytið myndi ekki fara eftir niðurstöðu álits umboðsmanns Alþingis, ef hún yrði á tiltekinn veg. Þegar stjórnvöld telja ástæðu til, eins og í þessu tilviki, að kynna lagareglur um störf umboðsmanns Alþingis, er ófært að þau láti slík ummæli standa óleiðrétt. 5. Ég
hef í fyrri ársskýrslum mínum ítrekað rætt um nauðsyn á
setningu stjórnsýslulaga. Vorið 1993 samþykkti Alþingi
stjórnsýslulög. Undirbúningur og meðferð laganna á Alþingi voru
vönduð. Frumvarpi til laganna fylgdi ítarleg greinargerð.
Greinargerð þessi ætti að verða þeim, sem í stjórnsýslunni
starfa, til leiðbeiningar við framkvæmd laganna og úrlausn mála.
|
![]() |
![]() |
|
| Álftamýri 7 - 150 Reykjavík - Sími 510 6700 - Fax 510 6701 - Gjaldfrjálst númer 800 6450 - Netfang postur@umb.althingi.is | ||