|
1991
| 1992
| 1993
| 1994
| 1995
| 1996
| 1997
| 1998 |
||||||||||||||||||
| |
1.
Skrifstofa umboðsmanns Alþingis að Rauðarárstíg 27, III. hæð,
var á árinu opin almenningi kl. 9.00-15.00 frá mánudegi til
föstudags. Auk mín voru starfsmenn þrír, Páll Hreinsson, sérstakur
aðstoðarmaður umboðsmanns, Katrín Jónasdóttir, skrifstofustjóri,
og Þórhallur Vilhjálmsson, lögfræðingur. Auk þeirra starfaði
Benedikt Bogason, héraðsdómsfulltrúi, við embættið um tveggja
mánaða skeið. Sem fyrr naut ég aðstoðar nokkurra manna vegna
einstakra viðfangsefna. 2. Á
árinu 1993 voru skráð 238 ný mál. Á árinu tók ég þrjú mál
upp að eigin frumkvæði. Skráð mál á grundvelli kvartana, sem
bornar voru fram, voru 235. Tekið skal fram, að mál er því aðeins
skráð að skriflegt erindi hafi borist, oftast í formi skriflegrar
kvörtunar, eða að umboðsmaður taki mál upp að eigin frumkvæði.
En einnig er algengt að menn hringi eða komi á skrifstofu
umboðsmanns og beri upp mál sín og leiti upplýsinga. Er þá oftast
greitt úr málum með skýringum eða með því að koma þeim í
réttan farveg innan stjórnsýslunnar, án þess að til skráningar
komi. Þessi þáttur í starfi umboðsmanns er tímafrekur eins og
áður. 3. Hinn 1. janúar 1994 gengu í gildi stjórnsýslulög nr. 37/1993 og 30. maí 1994 lög nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu. Þessi lög efla rétt einstaklinga og hafa því mikla þýðingu fyrir starf umboðsmanns Alþingis, svo sem það hefur verið ákveðið í 2. gr. laga nr. 13/1987 um umboðsmann Alþingis. Má í rauninni fullyrða, að lög þessi marki þáttaskil í þeim efnum. Hér er rétt að minna á, að Ísland hefur staðfest ýmsa fleiri sáttmála til verndar réttindum einstaklinga en Mannréttindasáttmála Evrópu. Gætir áhrifa þessara sáttmála í vaxandi mæli hér á landi. Meðal þessara samninga er Evrópusamningur um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Kom sendinefnd Evrópunefndar um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (CPT) hingað til lands í júlímánuði 1993 til að athuga fangelsi og aðrar stofnanir, sem undir sáttmálann falla. Kom sendinefndin á minn fund 12. júlí 1993 og átti ég gagnlegar viðræður við hana. 4.
Skýrsla mín til Alþingis fyrir árið 1992 var rædd á Alþingi 18.
nóvember 1993. Áður hafði ég ásamt aðstoðarmanni mínum, Páli
Hreinssyni, komið á fund allsherjarnefndar Alþingis, sem fjallaði um
skýrsluna. Ræddum við skýrsluna við nefndarmenn og gáfum
skýringar. Er af því mikill ávinningur fyrir embætti umboðsmanns
Alþingis, að Alþingi fylgist með störfum þess og fylgi eftir
ábendingum umboðsmanns, eftir því sem við á. 5. Í
starfi mínu hefur það í ýmsum tilvikum vakið athygli mína, hve
lög eru oft óskýr um stöðu stofnana og embætta í
stjórnsýslukerfinu. Það veldur þá meðal annars vafa á því,
hvort aðila máls er heimilt að kæra ákvörðun hlutaðeigandi
stjórnvalds til ráðuneytis svo og hverjar stjórnunarheimildir
ráðherra séu gagnvart umræddu stjórnvaldi.
|
![]() |
![]() |
|
| Álftamýri 7 - 150 Reykjavík - Sími 510 6700 - Fax 510 6701 - Gjaldfrjálst númer 800 6450 - Netfang postur@umb.althingi.is | ||