Við leit í álitum og öðrum niðurstöðum er hægt að leita að ákveðnu orði eða
orðum í textanum með hjálp textaleitar. Einnig er hægt að
leita að ákveðnu atriðisorði og ákveðinni stofnun með hjálp
fellivalmynda. Þá er hægt að leita að tilteknu máli ef
málsnúmer þess er þekkt eða öllum málum frá tilteknu
tímabili. Leitin verður nákvæmari eftir því sem fleiri
valmöguleikar eru notaðir.
Nánar um einstaka möguleika
í leitarvélinni:
Textaleit
Með hjálp textaleitar er hægt að leita í öllum textanum að tilteknu orði eða orðum.
Við þessa leit er hægt að slá inn heilt orð eða hluta orðs.
Dæmi um heilt orð: starfsmaður
Dæmi um hluta orðs: starfsm
Þegar hluti orðs er
sleginn inn verður leitin víðtækari.
Rétt er að benda á að
þessi leit getur verið mjög víðtæk þar sem textaleitin leitar
að viðkomandi orði/orðum í öllum orðasamböndum þess.
Atriðisorð
Hægt er að leita að
einstökum atriðisorðum í öllum textanum með því að velja
atriðisorð í fellivalmyndinni við enda stikunnar. Leitin
takmarkast við það orð sem valið er og er þessi leit því mun
þrengri en leit með hjálp textaleitar.
Stofnun
Hægt er að leita að
einstökum stofnunum sem kvartað hefur verið yfir með því að
velja hlutaðeigandi stofnun í fellivalmyndinni við enda
stikunnar.
Málsnúmer
Hægt er að leita að einstökum málum eftir númeri með því að slá inn fyrri hluta
númers og nota fellivalmyndina við síðari hluta númersins.
Máli lokið
Hægt er að leita að málum frá ákveðnu tímabili með því að setja dagsetningar með
hjálp fellivalmynda við viðkomandi stikur.
|