3. september 2010
 

 
Opinberir starfsmenn. Breytingar á starfsskyldum ríkisstarfsmanns. Tilflutningur ríkisstarfsmanns. Niðurlagning stöðu. Réttaröryggi.
(Mál nr. 776/1993)

A kvartaði yfir starfslokum sínum hjá Vita- og hafnamálastofnun ríkisins, sem bar að með þeim hætti að staða skrifstofustjóra Vitastofnunar var lögð niður frá 1. janúar 1993 samkvæmt ákvörðun samgönguráðuneytisins. A mótmælti tilkynningu ráðuneytisins um starfslok hans með þeim rökum að hann hefði gegnt stöðu skrifstofustjóra Vita- og hafnamálastofnunar samkvæmt skipunarbréfi allt frá árinu 1979 og að sú staða hefði ekki verið lögð niður. Af hálfu samgönguráðuneytisins og Vita- og hafnamálastofnunar var hins vegar byggt á því að A hefði með eigin samþykki verið fluttur í starf skrifstofustjóra Vitastofnunar á árinu 1989.

Umboðsmaður rakti ákvæði laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og benti á að stjórnvöld hefðu heimildir til að breyta störfum ríkisstarfsmanna, flytja embættismenn úr einu embætti í annað, með ákveðnum skilyrðum, og leggja niður stöðu. Hins vegar ætti starfsmaður sem skipaður hefði verið í stöðu rétt á að gegna þeirri stöðu þar til eitthvert lögákveðinna atvika 4. gr. laga nr. 38/1954 kæmi til. Umboðsmaður benti á, að það hefði eingöngu verið ráðherra sem hefði verið bær að lögum til að flytja A til í starfi. Engin óyggjandi gögn lágu fyrir um að stjórnvaldsákvörðun hefði verið tekin um tilflutning A skv. 5. tölul. 4. gr. starfsmannalaga, eða að slík ákvörðun hefði verið birt A. Ekki var gerður skriflegur samningur við A um stöðu skrifstofustjóra Vitamálastofnunar samkvæmt 3. gr. laga nr. 97/1974. Þá féllst umboðsmaður ekki á þau sjónarmið samgönguráðuneytisins að ákvörðun um breytingu á fjárlagalið, sem greiðsla vegna tiltekinnar stöðu skyldi falla undir, gæti haft í för með sér flutning ríkisstarfsmanns úr einni stöðu í aðra.

Umboðsmaður benti á, að ákvörðun um skipun, setningu eða ráðningu ríkisstarfsmanns teldist til stjórnvaldsákvarðana sem ríkar kröfur væru gerðar til að væru ótvíræðar að efni til. Af þessum sökum yrðu slíkar ákvarðanir almennt ekki bundnar skilyrðum. Það skipti miklu máli að ótvírætt væri hvenær slíkar stjórnvaldsákvarðanir væru teknar, hvert efni þeirra væri og hvenær efni þeirra væri breytt eða það fellt niður. Taldi umboðsmaður að samgönguráðuneytið hefði ekki sýnt fram á, að A hefði á löglegan og bindandi hátt verið fluttur úr starfi skrifstofustjóra Vita- og hafnamálastofnunar ríkisins í starf skrifstofustjóra Vitastofnunar. Ákvörðun samgönguráðuneytisins um starfslok A hefði því ekki byggst á lögmætum grundvelli. Beindi umboðsmaður þeim tilmælum til samgönguráðuneytisins, að það tæki mál A til meðferðar að nýju, ef hann færi fram á það, og tæki þá til sérstakrar athugunar hvernig hlutur hans yrði réttur.

 

             
Álftamýri 7 - 150 Reykjavík - Sími 510 6700 - Fax 510 6701 - Gjaldfrjálst númer 800 6450 - Netfang postur@umb.althingi.is