|
|
Opinberir starfsmenn. Breytingar á starfsskyldum ríkisstarfsmanns. Tilflutningur ríkisstarfsmanns.
Niðurlagning stöðu. Réttaröryggi.
(Mál nr. 776/1993)
Samantekt :
Í ítarlegu áliti sínu rakti umboðsmaður Alþingis ákvæði laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og benti á að stjórnvöld hefðu heimildir til að breyta störfum ríkisstarfsmanna, flytja embættismenn úr einu embætti í annað, með ákveðnum skilyrðum, og leggja niður stöðu. Hins vegar ætti starfsmaður sem skipaður hefði verið í stöðu rétt á að gegna þeirri stöðu þar til eitthvert lögákveðinna atvika 4. gr. laga nr. 38/1954 kæmi til. Umboðsmaður benti á að það hefði eingöngu verið ráðherra sem hefði verið bær að lögum til að flytja mann, sem gegnt hafði stöðu skrifstofustjóra hjá Vita- og hafnamálastofnun, til í starfi. Engin óyggjandi gögn lágu fyrir um að stjórnvaldsákvörðun hefði verið tekin um tilflutning mannsins skv. 5. tölul. 4. gr. starfsmannalaga eða að slík ákvörðun hefði verið birt honum. Ekki var gerður skriflegur samningur við hann um stöðu skrifstofustjóra Vitamálastofnunar samkvæmt 3. gr. laga nr. 97/1974. Þá féllst umboðsmaður ekki á þau sjónarmið samgönguráðuneytisins að ákvörðun um breytingu á fjárlagalið, sem greiðsla vegna tiltekinnar stöðu skyldi falla undir, gæti haft í för með sér flutning ríkisstarfsmanns úr einni stöðu í aðra. Umboðsmaður benti á að ákvörðun um skipun, setningu eða ráðningu ríkisstarfsmanns teldist til stjórnvaldsákvarðana sem ríkar kröfur væru gerðar til að væru ótvíræðar að efni til. Af þessum sökum yrðu slíkar ákvarðanir almennt ekki bundnar skilyrðum. Það skipti miklu máli að ótvírætt væri hvenær slíkar stjórnvaldsákvarðanir væru teknar hvert efni þeirra væri og hvenær efni þeirra væri breytt eða það fellt niður.
|