|
Máli lokið með bréfi, dags. 10. janúar 1990. Vegagerð ríkisins synjaði A um bætur fyrir jarðefni, sem tekin höfðu verið á landsvæði nokkru. Ég benti A á, að ágreiningsefninu mætti skjóta til samgönguráðuneytisins, sbr. 7. gr. vegalaga nr. 6/1977, en samgönguráðherra færi með yfirstjórn allra vegamála samkvæmt lagagrein þessari. Væru því ekki fyrir hendi lagaskilyrði til þess, að ég fjallaði um málið, fyrr en úrlausn samgönguráðuneytisins lægi fyrir.
|
||||||
![]() |
![]() |
|
| Álftamýri 7 - 150 Reykjavík - Sími 510 6700 - Fax 510 6701 - Gjaldfrjálst númer 800 6450 - Netfang postur@umb.althingi.is | ||