|
|
Starfsmenn á skrifstofu umboðsmanns Alþingis

Umboðsmaður
Alþingis:
Tryggvi Gunnarsson var endurkjörinn umboðsmaður Alþingis á fundi
Alþingis 13.
desember 2007 til fjögurra ára.
Hinn 1. janúar 2009 var
Róbert R. Spanó, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, settur
af hálfu forsætisnefndar Alþingis tímabundið í embætti umboðsmanns
á meðan kjörinn umboðsmaður, Tryggvi Gunnarsson, gegnir störfum í
rannsóknarnefnd Alþingis, sbr. lög nr. 142/2008 um rannsókn á aðdraganda
og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða. Róbert
sinnir daglegum störfum umboðsmanns en nánari verkaskipting er ákveðin
af kjörnum umboðsmanni.
Í samræmi við 3. mgr.
14. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, eins og henni var
breytt með lögum nr. 142/2008, er verkaskiptingu á milli kjörins og
setts umboðsmanns þannig háttað að settur umboðsmaður fer með
yfirstjórn skrifstofu umboðsmanns og annast rekstur hennar meðan kjörinn
umboðsmaður sinnir starfi nefndarmanns í rannsóknarnefnd Alþingis
samkvæmt lögum nr. 142/2008, eftir atvikum að höfðu samráði við
kjörinn umboðsmann. Þá fjallar settur umboðsmaður um allar
kvartanir sem embættinu berast á meðan á leyfi kjörins umboðsmanns
stendur og tekur ákvarðanir um hvort hefja skuli athuganir að eigin
frumkvæði, sbr. 5. gr. laga nr. 85/1997. Ef settur umboðsmaður telst
vanhæfur til að fjalla um mál tekur kjörinn umboðsmaður afstöðu
til þess hvort hann fjallar sjálfur um málið eða óskar eftir því
að forseti Alþingis setji annan mann til að fara með málið, sbr.
2. mgr. 14. gr. laga nr. 85/1997. Vegna þeirra mála sem til umfjöllunar
voru hjá umboðsmanni Alþingis 1. janúar 2009 tók settur umboðsmaður
við afgreiðslu þeirra nema í þeim málum þar sem settur umboðsmaður
taldist vanhæfur til að fjalla um þau. Kjörinn umboðsmaður fjallar
því áfram um þau mál og annast afgreiðslu þeirra.
Aðrir
starfsmenn:
Berglind Bára Sigurjónsdóttir,
lögfræðingur,
Erna
Guðrún Sigurðardóttir,
lögfræðingur,
Finnur Þór Vilhjálmsson,
lögfræðingur,
Hafsteinn
Dan Kristjánsson, lögfræðingur,
Hafsteinn Þór Hauksson,
skrifstofustjóri,
Ingibjörg Þóra Sigurjónsdóttir, rekstrarstjóri,
Margrét María Grétarsdóttir,
lögfræðingur,
Ottó Björgvin Óskarsson, lögfræðingur,
Særún María Gunnarsdóttir,
lögfræðingur.
|